Árin sem koma á óvart..;)
12.03.2009 17:30:49 / Mæsan

Baby or Beer

Góðan daginn !!

Nú verður brotið blað í tveggja binda ævisögu minn og ég mun blogga!! það sem ber helst að nefna að ég ef haldið mínu striki.. tekið station helgar í massavís og haft gamna af! það er líka gaman að segja frá því að ég er ekki ólétt! en fannst samt alveg að ég mætti setja mynd af bumbunni minni hér inn :) það er ekkert bundið við að maður sé óléttur. Hef nefninlega ekki heyrt manneskju hrósa mér fyrir drullu fallegan kút sem ég er svo sannarlega með, en oft þegar fólk gengur með barn undir belti þá sér maður gjarnan komment á myndir eins og "flott bumba" Held ég að landinn hafi ekki efni á getnaðarvörnum eins og staðan er í dag. Það eru a.m.k. margir óléttir! sem er kúl.. fjölga okkur mannkyninu. Maður eignast líka fullt af litlum frænkum og frændum, þó svo sumir séu bara plat. En ég neee, ég ætla halda áfram að malla hin fullkomna erfingja sem mun taka við stjórn einn góðan verðurdag. Svo er ég líka allt of upptekinn við að eyða tengdamömmu minni, en lifrin kallast tengdamamma fyrir ykkur sem ekki vitið það ;) Á helginni verður kvissandi baukur í boði í sveitinni, eintóm gleði og hamingja!


Þarna er ég búinn með 3 bauka.


Búin að renna niður 9 dollum hér.

~Mæs


» 11 hafa sagt sína skoðun

29.01.2009 16:47:06 / Mæsan

Janúar

Góðan daginn!!

Ég er bara alveg hætt þessu bloggi, en úr því ég var að setja þetta nýja útlit þá verður maður að pára nokkra stafi hér í leiðinni. Það sem janúar hefur upp á að bjóða er nokkuð. Það fór ansi frítt föruneyti í Sveitina fögru helgina 16 - 18. jan, en þá fórum ég, Margrét, Elvar, Rannveig og Sólveig í svona helgarferð sem einkendist aðalega af drykkju og ósóma. Það var drukkið, eldaður góður matur, drukkið með honum, spilað spil, spilað á hljóðfæri, drukkið með því, hlegið, dansað, horft á íscross, farið í lónið, drukkið í lóninu og farið í Kröflu svo eitthvað sé nefnt. Alveg stórgóð helgi að öllu leyti og hugsanlega verður tekinn annar svona leikur. Svo hef ég sinnt skólanum inn á milli. Mæs er líka orðin meðlimur í saumaklúbb og Þuríður situr sveitt með mig á hægri hönd og reynir að kenna mér að prjóna sem gengur bara nokkuð vel! Nú ekki má gleyma hinu árlega Þorrablóti Mývetninga sem við að sjálfsögðu mættum á, ásamt sambílungum mínum þeim Árna Hólm og Huldu. Það var mjög gaman á blótinu og það er helst frá því að segja að Ómar Zarioh dansaði eins og enginn væri morgundagurinn :)
Nú er janúar hinsvegar að enda og það er líka ljómandi gott. Næst á dagskrá er róleg helgi og svo er það 25 ára afmæli Benna, sem verður án efa þrusu stuð :D

kv Mæs

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.01.2009 18:08:30 / Mæsan

Gleðilegt nýtt ár!!

Komiði sæl og blessuð...

Þá er árið 2009 gengið í garð og þess vegna við hæfi að renna létt yfir það gamla!
þar sem ég er með gullfiskaminni er ekki að búast við að ég muni hina ýmsu merkis viðburði. Allavega ef við stikklum á stóru þá var nú ekkert mikið um að vera í byrjun ársins ja jú, stundaði námið í VMA og ræktina, þess á milli drakk ég bjór og átti góðar stundir með vinum og vandamönnum. Fór vestur inn á milli og gerði góða hluti. Svo var það ekki fyrr enn fór að vora að eitthvað fór að gerast.. Kjellingin tók upp hina langþráðu hvítu húfu og smellti á höfðuð sér eftir að hafa lokið VMA með stile og dimmiterað í 3 sinn. Stoltir foreldrar komu og það var mikið gaman ;) Svo þarna einhverju seinna þá tók vinnan við, það er ávallt jafn gaman að vinna með þessum elskum þarna á Sjúkrahúsinu á Húsavík.. alveg stórgóður hópur! já það verður að segjast. Soffía mín bjó hjá okkur Óms í sumar og það var fínt að vera í meirihluta á bænum. Eftir þónokkra drykkju og glens tók haustið við og Mæsan gékk í Háskólan á Akureyri. Þuríður hélt í hönd mína þar og við höfum átt alveg stórgóðan vetur ásamt öðrum góðum vinum  .. alltaf gaman að kynnast nýju fólki og bæta vinum í hópinn. Vesturferðir voru líka farnar, þar er alltaf dásamlegt að koma og hitta liðið. Prófatíðin hófst svo í Desember sem er líklega áhrifamesti mánuðurinn á þessu ári. Ég lauk við prófin fór vestur í 4 daga og hélt svo suður til að halda jólin þar ásamt Ómari mínum. Á suðurlandinu var ýmislegt brallað s.s ball á Selfossi og verið í sumarbústað í Þykkvabænum. 26. desember fjölgaði svo í fjölskyldunni þegar Rakel systir og Sveinn eignuðust litinn dreng :) Fjölskyldan hætti samt ekki að stækka og 30.desember bætist enn ein prinsessan í hópinn hún Ragnheiður María sem hann Jón Þór bróðir og Elva færðu í heiminn :) Þetta er sannkölluð desember fjölskylda .. svo komu áramót og þau voru sprengd upp með öllu tilheyrandi og allt mjög svo frábært bara :D  Prófunum náð og skólinn byrjar svo aftur á þriðjudaginn ..

Gott ár.. stefnum á að hafa þetta enn betra !!

~ Mæs

» 2 hafa sagt sína skoðun

15.12.2008 18:16:22 / Mæsan

Jing djang dá...

Komiði sæl og blessuð...

Það hefur ekki örlað á skrifum hér í langan tíma .. það er ekki vegna þess að ég hafi ekki komist af klósettinu heldur er það út af stöðu himintunglanna. Ég vill byrja á því að óska sjálfri mér til hamingju með afmælið þann 5.desember, finn strax hvernig aldurinn færist yfir mig á ögurstundu. Nú prófum lauk opinberlega í dag og það er nú gleðilegt. Það sem er frá því að segja er að Trölli kom og frestaði kúkakeppninni.. Mikið öngþveyti myndaðist í apótekum landsins þegar þessi keppni spurðist út og hafa menn sett sig í samband við mig og beðið um einkaréttinn á að opinbera hana almenningi og jafnvel efna til heimsmeistara móts í þessum greinum. Ómar á næsta leik og það er að kaupa Klyxið en það ætlar eitthvað að reynast kalli erfitt :p heyrst hefur að varan sé uppseld í landinu þar sem anorexíu sjúklingar hópuðust að til að hamstra vöruna þegar gengi krónunar féll! eigi verður fallið af þessari áskorunn fyrr en henni er lokið. Gætu orðið svæsnar og grófar lýsingar á atferlinu svo viðkvæmir verða að vara sig. Skora ég að lokum á Ómar að standa við sinn part af samningnum.. og hvet aðra til þess sama...

~Mæs

» 2 hafa sagt sína skoðun

16.11.2008 18:54:02 / Mæsan

Undarleg áskorunn..

Komiði sæl ..

Þá er enn ein helgin að líða undir lok, við hér í skútahrauninu höfum nú ekki afrekað mikið þessa helgi það verður að segjast... þar sem við höfuð stundað heilsuspillandi sófalegu án nokkurs hreinlætis, töldum við það réttast að þrífa okkur áður en fólk hefði farið að gruna okkur um að ná í mat í ruslið þeirra. Ég var að leika mér með uppáhalds gulu öndina mína þegar við Ómar fórum að ræða hægðir. Það finnst okkur svolítið gaman og oftar en ekki er þessi umræða tekinn á borð. Þannig er mál með vexti að Ómar veiktist hér einn kaldan vetur og engdist um að kvölum í mallakút, ég taldi þetta vera bandorm sem sest hafði að í þörmum hans en hann vildi ekki hlusta á verðandi heilbrigðisstarfsmanninn. Svo slæmt var það að hann fór til læknis að nóttu til og þar lenti hann í lífsreynslu sem hann mun seint gleyma. Honum var slengt á bekk eins og saklausum fyrsta bekking sem er að læra sín fyrstu bringusundstök og húkrunarkona með latex hanska rétti fram hægri hendi. Þið vitið að fólk hefur mismunandi fingur! við erum að tala um konugrey með stuttu feitu puttanna. Þetta rak hún svo á kaf í þarma Ómars án þess að blika auga, hún vildi meina að anginn minn væri með hægðarteppu sem er ansi vinsæll sjúkdómur á þessu æviskeiði. Hjúkrunarkonan nestaði minn mann með 500ml af klyxi og með það hélt hann heim. Vélsmiðurinn vissi lítt um umræddan vökva en þar kom nú Sjúkan upp í minni. Ég sagði honum hvernig bera ætti sig að með þetta og það má segja að svipurinn hafi verið sviptur af honum eins og á barni þegar trölli frestaði jólunum. Að sjálfsögðu bauðst ég til að dæla þessu í þarma hans og fékk að gera það en þó með semingi. Hann átti að halda þessum vökva í sér í c.a. 15 mín og frussa þassu svo í stellið.

Svo ég komi mér að efninu þá fullyrðir Ómar að það sé ekki hægt að halda þessu í sér í 15 mín!! ég sagðist nú hafa séð það gert en trúir hann því alls ekki...

Ómar hefur nú skorða á mig að um næstu helgi eigum við að fá brúsa af Klyxi á mann og setja hann í þarmaopið og svo er keppni um hvor heldur þessu lengur í sér!! við ætlum að staðsetja okkur þannig að það sé nákvæmlega jafnt á klósett (2 í húsinu) og reglurnar eru þannig að WC setan á að vera niðri og við klædd í gallabuxur.

Þar sem ég er ekki þekkt fyrir að víkja mér undan áskorunnum þá hef ég sagt honum stríð á hendur :) við ætlum nú að fá einhvern á myndavélina .. held það sé nauðsynlegt ..

Úrslit verða svo væntanlega birt hér að keppni lokinni ...

GO Mæs... :)


» 6 hafa sagt sína skoðun

05.11.2008 09:16:52 / Mæsan

Ég veit það ekki .... ég drekk ekki mjólk

Komiði sæl

það hefur nú ýmislegt á daganna drifið síðan seinast og það er aðalega út af því að ég lifi mjög innihaldsríku og frábæru lífi! Nú ég fór vestur á heimaslóðir og var þar í viku. Gaman að hitta gott fólk það verður að segjast og við fórum á spurningakeppnina Drekktu betur og sýndum þessu liði svo sannarlega hvernig á að drekka betur. Elísa var sperðill og stóð sig með stakri príði þó ég hefði viljað láta ljós mitt skína aðeins skærar. Það er víst ekki hægt að vita allt þó maður sé með 5 háskólagráður og kennsluréttindi. Nú föstdagurinn fór þá í eymd og volæði. En á Laugadaginn þá var kát í kofa. Fullorðið fólk sem löngu er ætt að totta túttur hefu gaman af því að klæða sig í grímubúninga og drekka sig svo golgóma og vona að hin nýji karakter taki bömmerinn daginn eftir. Ég skapaði frábæra persónu hún hét Strawberry Cubcake Creamcake. Hún var með rautt hár og í mjallhvítarkjól af sex ára barni, hún var svona káta típan og kannski á sveppatrippi. En þetta var svaka stuð .. minnir mig :)
Nú er núna er ég komin aftur á Eyrinna og lærdómur er tekinn við ...
Á döfinni er að hitta kjellinn minn og svo er það árshátíð HSÞ þar sem Strawberry ætlar að koma fram og vera með dólgslæti !
Svo er að sjá að ég hafi loksins fengið svar frá pennavinum mínum í azerbaijan sem commenta hér í gríð og erg .. enda var ég varinn að halda að þeir hefðu slitið keðjubréfið mitt.

Ræktin er komin á borðið líka eftir dísæta vesturför,,  Væri ég grennri ef ég drykki mjólk....ég veit það ekki ! ég DREKK ekki mjólk.

~ Mæs

» 3 hafa sagt sína skoðun

17.10.2008 20:58:46 / Mæsan

Case closed !!

Mál þetta, sem var dómtekið í fyrradag, höfðaði sýslumaðurinn á Ísafirði þann 22. mars sl. með ákæru gegn Maríu Sigurrós Ingadóttur, kt. xxxxxx-xxxx, Hlíðarvegi 16, Bolungarvík,

„fyrir líkamsárás, með því að hafa aðfaranótt sunnudagsins 24. september 2006, á veitingahúsinu vaXon.is við Aðalstræti 9 í Bolungarvík, veist að A á dansgólfi staðarins, gripið um bera handleggi hennar og nokkru síðar slegið hana með krepptum hnefa í höfuðið og sparkað í framanverðan hægri fótlegg hennar, með þeim afleiðingum að hún hlaut rispur og mar á hægri framhandlegg og vinstri öxl, mar á hægri fæti og eymsli á hvirfli.

Ákærða kom hér fyrir dóm og kvaðst taka fram að A hefði átt upptökin að átökum þeirra. Þá neitaði hún að hafa sparkað í hægri fótlegg hennar. Af hálfu ákæruvaldsins var fallið frá þeim þætti í verknaðarlýsingu ákæru og einnig þeim þætti í lýsingu á afleiðingum háttsemi ákærðu að hún hefði valdið mari á hægri fæti. Kvaðst ákærða játa sök að ákæru svo breyttri, enda var tekið fram af hálfu ákæruvaldsins, að staðhæfingu ákærðu um að A hefði veist að henni áður en ákærða hafði í frammi þá háttsemi sem lýst er í ákæru, væri ekki sérstaklega mótmælt..

Eins og málið liggur fyrir verður byggt á staðhæfingu ákærðu um að A hafi í upphafi veist að henni. Á hinn bóginn verður að líta til þess að höfuðhöggið greiddi ákærða A nokkru síðar, eins og segir í ákæru, og gat ákærða þess fyrir dómi að það hefði ekki verið á dansgólfinu, heldur fyrir utan veitingahúsið. Með tilliti til þessa eru ekki skilyrði til að beita refsilækkunar- eða brottfallsheimild 3. mgr. 218. gr. b almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 83/2005 og 12. gr. laga nr. 20/1981, en litið verður til þessa við ákvörðun refsingar, sbr. 7. tl. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Ákærða hefur ekki sætt refsingum. Refsing hennar ákveðst sekt til ríkissjóðs að fjárhæð 40.000 krónur og komi fangelsi í fjóra daga í stað sektarinnar, verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá uppsögu þessa dóms að telja. Einnig ber að dæma ákærðu til að greiða sakarkostnað, sem nemur 10.000 krónum vegna áverkavottorðs.

Þannig hljómaði þessi blessaði dómur

Og núna 14. Október 2008 þá fékk ég bréf sem segir "Yður tilkynnist hér með að miðvikudaginn 5.nóvember n.k kl. 13:45 verður að útgarði 1, Húsavík, tekin fyrir beiðni um fjarnám hjá yður, fyrir að fjárhæð kr. 50,000"

Já það er ekkert annað, djöfulsins glæpakvendi sem maður er !! En þar sem ég nenni ekki að standa í svona fokki fyrir skíta 50.000 kjell þá borgaði ég þessa tussi fokk drullu sekt og tapaði sem sagt þessari baráttu en á hinn boginn geta þessir anskotar látið mig í friði !!

Svo ég vitni í Móður mína : "það má ekki slást á böllum" og Föður minn "það ætti að skjóta þessa anskota"

Með þessum orðum segi ég CASE CLOSED

~ Mæs


» 33 hafa sagt sína skoðun

06.10.2008 21:08:06 / Mæsan

Helgarpistill

Góða kveldið landsmenn

Nú afdrif helgarinnar eru nokkuð góð, allavega þurfti ég að sæta refsiæfingu hjá Þjálfaranum í dag fyrir óhærilegt pizzuát og bjórdrykkju. Eins og komið hefur fram þá var hið víðfræga sprellmót HA á föstudaginn og þótt mér ég vera að dimmitera í 4 skipti. Við heilbrigðisdeildin lékum sveitadurga, og það var tilvalið því lítið þurti ég að eiga við garmana mína til að fá vel sjóaðan hundingja til leiks. Þetta var allt þræl gaman og ég tók nú þátt í bjórboðhlaupi sem gekk bara vel. Hungrið var farið að herja á mann þegar heim var komið svo við vinkonur skelltum okkur á Dominos til að sækja smá fóður og það var þá sem ég át á við meðal sjómann og einhvernveginn settist það ekki vel í vömbina. Skelltum okkur svo í spandexgallana og í sjallan þar sem söngvakeppninn fór fram ásamt beer bongi! Nú þar sem ég er eitilharður nagli þá ætlaði ég að bonga en þar sem allur matur sem ég hef étið síðan um 3 ára aldurinn ákvað að skila sér í stellið þá var maður ekki alveg game.. en bjórinn rann eigu að síður ljúft niður þó hann hafið ekki runnið á sekúndukvarða. Þegar fólk hafði verið með lostalæti og yfirgang þá máttum við til að fara og hrista skankana aðeins á dansgólfum bæjarins! Í bænum hitti ég Bylgju sem var í slagtogi með manni sem förlaði til mannsins úr pineapple express myndinni og ég get svo svarið það að hann ætlaði sér að gerast byggingarverktaki og hanna rotþrær fyrir leikskólabörn svo þau gætu kúkað belssuð. Ekki má gleyma rjómarifflinum mínum úr sýslunum henni Kollu sem lét sig ekki vanta í herlegheitin:)
Við Bylgja keyptum svo pizzu og fórum heim og með faðirvorið...
Laugadagurinn var ekki síðri .. Vinnan hans Ómar míns var Elgrandos og buðu okkur í siglingu með Húna II og þar mátt nú drekka mjöð úr kolageymslunni ásamt snittum. Svo var 3 rétta kvöldmatur með hvítu og rauðu og gulu og gaman bara. Smá þynnka í kjellu sem henni tókst að mjattla úr sér með því að hamast á dælu kvekindinu. Vélsmiðjan var svo fyrir valinu þar sem meðalaldurinn var í hærra lagi og þar slefaði einhver svartfullur jólasveinn á mig og annar helti yfir mér eins og 500ml af bjór sem ég fýlaði af sjálfsögðu! Við hjú fórum svo bara á hótel KEA og lögðumst til hvílu og pizza etinn ekki spurning..
Þetta er bara orðið langt .. má til með að segja frá sunnudeginum : ÞUNNUR GAUR

kv Mæs rifjar upp gamla takta

» 33 hafa sagt sína skoðun

30.09.2008 19:45:09 / Mæsan

Það snjóar á landi klaka

Heil og sæl fólk gott

Nú það er frá því helst að segja að ég er að drepast úr hungri!! vegna þess að ég hef breytt um lífstíl samhliða einkaþjálfun og fæðið sem ég ét var aldrei í mínu 6 flokka fæðuhring. Afhverju er bjór ekki í fæðuflokk ? ég hef sett persónulegt met og aðeins drukkið einn bjór á 7 dögum. Já og naut hans ekki einu sinni þarf sem ég drakk kvekindið á 28 sek vegna æfingar sem ég var að stunda. Burt sé frá hungri mínu þá snjóði fyrsta snjónum á norðulandi í dag! þeir sem ekki trúa því geta étið hund.
Líf mitt er ekki eintómt volæði og þess má geta að Sprellmót HA fer fram á föstudaginn og einhvernveginn leggst það allveg þræl vel í mig - einu upplýsingar um þetta mót voru að bjór yrði þema og af því tilefni skráði ég mig í bjór boðhlaup og beer bong.
Laugadagurinn ekki síðri þar sem það er djamm með vinnuni hans Ómars og það verður borðað saman, farið í siglingu og gist á KEA svo ég segi eitthvað.
Hvað meir .. uuu hvert er heimurinn að fara? gerum gott úr þessu og föðmum næsta mann og segjum : "þetta reddast"
Ég vænti lífs á þessari síðu(spiki)
Fleira? neee held bara ekki

~ Mæs

» 25 hafa sagt sína skoðun

21.09.2008 21:00:27 / Mæsan

Finndu mig hérna góurinn

Gott kvöld

Þá erum við svaðilfarar komnir heim. Ferðin byrjaði kannski ekki sem skildi en við hjónaleysin ákvöðum að fara í smá hjólaferð hérna á þriðjudagskveldið 16. sept kl 18:00 nánar tiltiekið og fórum einhverjar svoo ótroðnar slóðir að fjallageitur í norður Nepal hefðu ekki átt nokkra sénsa, að ég tel. Ég kross og sót bölvaði svo mikið að mildi þykir að djöfullinn sjálfur hafi ekki komið úr helvíti og viljað gera mig af arftaka sínum! Enda tekur víst allt og ég hafði mig upp á veg sem var skömminni skárri og lá hann að gamla Vaðlarheiðaveginum. Nema hvað að Ómar minn var fyrstur í flokki og eins og hendi væri veifað datt kjellinn og lent frekar illa. Nú við skröngluðumst til byggða og fórum á FSA og þá var nokkuð ljóst að eintthvað var að. Að morgni ferðadags eða 17.sept kom það svo í ljós að anginn var með brotið bátsbein eða Os scaphoideum eins og það heitir á fræðiheitinu, ekki var það nóg heldur voru slitin liðbönd og sitthvað fl. Þannig Ómarinn fer í aðgerð á föst og lætur rústfría nagla í hendina á sér og valsar svo í gipsi næstu 8 vikurnar eða svo..
Ekki stoppaði þetta vesturförina og við skeltum okkur heim milli fjalla. Þetta var svona ljómandi hitta fólkið mitt og svona, hefði nú gjarnan vilja hitta fleiri en það eru víst ekki allir heima á sama tíma.
Bjórinn var þjóraði eins og kálfar hefðu komist í mysufötu. En nú tekur alvaran við því við Þuríðu ætlum í einkaþjálfun á morgun og þá þýðir víst lítið að liggja með nefið ofan í freyðandi mjöðnum.

ekki meira í bili ..
~ Mæs

» 35 hafa sagt sína skoðun

09.09.2008 16:43:18 / Mæsan

Vísó

Sæl börnin góð..

Það er lítið upp á teningnum núna, en það er samt best að reyna að skrifa eitthvað smotterí. Nú móðir mín kom í heimsókn til mín um helgina og það var að sjálfsögðu ljómandi stemming, drukkum bjór, átum hreindýralundir á hótel Reynihlíð og fengum okkur eðal kokteila. Alltaf jafn gran við mæðgur og líka hann Ómar minn :)
Svo er það stóra spurninginn hvort ég eigi að bregða mér í fyrstu vísindaferðina með Nemendafélagi mínu Eir. Hljómar nú nokkuð vel bara, ferð á Kristnes og svo drukkinn íslenskur jafnt sem erlentur mjöður á Kaffi Amour. Ekkert að því. Þetta er samt spurning um nennu, hefði verið tussugame á fimmtudaginn. Af því maður er nú að fara í brúðkaup og svonna á laugardaginn, þar sem hjúin sem ég bý hérna hjá á AK eru að fara að ganga í það heilaga. Já sei sei... manni veitti svo sem ekki af þessar ferð með bekknum svona í ljósi þess að maður þekkir ekki nokkra hræðu og gæti orðið mannskemmandi til lengdar að tala við hann Wilson vin minn alla önnina.

en já hvað gjöra skal? Pæling

~Mæs

» 27 hafa sagt sína skoðun

27.08.2008 20:43:04 / Mæsan

Akureyrarvaka

Kvöldið
Ekki má Akureyris vera útundann og heldur sína eigin menningarnótt um helgina. Fuss og svei fyrir að það skuli vera á laugardaginn en ekki föstudaginn loksins þegar maður breytir út af gömlum vana og eyðir föstudegi á eyrinni. Allt að dretta í sama gírinn og undarfarin ár. Skólinn kominn á fullt og byrjuð í ræktinni, ekki veitir af. Nú það er nú þannig að háskólafólk í HA kann ekki að leggja og það ætti að vera með hópnámskeið í að leggja bílum. Þannig var það í dag að ég kom í skólann lagði snyrtilega hliðina á einhverjum bíl og hélt svo til náms. Kl: 10:45 þegar ég var búinn og ætlaði að drífa mig heim var staðan þannig að bíla röð var fyrir aftan mig og fyrir framan mig og til hliðina eða fyrir heimska þá var þetta rétthyrntur ferhyningur utan um bílinn minn. Ég mátti því hripa númerum niður á blað og látta þessa ágætu skrifstofukonu hringja í bifreiðaskoðun og gefa upp nafn á eiganda og þefa hann svo uppi og láta hann færa skrjóðinn svo ég kæmist leiða minna. Þannig er mál með vexti að það eru ekki næg bílstæði fyrir allt þetta fólk í skólanum. Þó ég sé nokkuð viss um að sumt af þessu fólki geti alveg labbað en bara nennir því ekki.
Aldrei hefur maður þurft að lesa svona mikið á einum degi .. gengur hægt en gengur samt.
Jæja það er nú ekkert markvert í fréttum ..
Ætla á barinn á föstudaginn... einhver memm!
~Mæs

» 28 hafa sagt sína skoðun

20.08.2008 20:15:12 / Mæsan

Jia-you Is-land

Buenos días

Ég er orðin háskólamær, þekki engan veit ekkert og er asni fífl og hálviti ;) nei ekki þessa svertu kona. Byrjaði í Háskóla Akureyra í gær og legg drög á Hjúkrunarfræði en ég mun samt aldrei hætta að kynna mig sem María nurse associate! afþví það er bara töff. Þetta er allt mjög spennandi nema verðið á bókunum sem ég keypti og staðreyndin um að þær séu á þykkt við Kóraninn og á álíka skiljanlegu máli. Bók á 9 grönd, takk og bless. Já það er eins gott að ég á barn sem vinnur við að vefja teppi í arzebaijan, því annars hefði ég ekki efni á þessu. En það þýðir ekki að grenja heldur verður maður að læra einhvern anskota svo marr geti plummað sig. Þó fólk sem ekkért læri plummi sig líka vel.

Kann ekki við að sitja á skólabekk þegar Íslenska handknattleiksliðið eða "Strákarnir okkar" eru að spila á föstudaginn. Ég held nefnilega að ég geri þeim gott með öllu mínu fussi og sveii. Vona að það sé einhver handbolta unnandi sem kennir :) 
En gott gott .. ég segi bara Jia-you Is-Land eins og granninn segir :!:

~HáskólaMæs 

» 30 hafa sagt sína skoðun

10.08.2008 05:23:11 / Mæsan

smá uppfærsla

Langt er liðið .. en komiði sæl

Lítið hefur maður gefið sér tíma til að vafra um netheiminn nema þá einna helst á næturvöktum eins og núna. Maður hefur nú getr lítið annað en að vinna baki brotnu fyrir veturinn síðustu vikur, enda er óhuggulega stutt í að maður setjist á skólabakk að nýju og það í nýjum skóla. Hef svo sem ekki mikið velt mér upp úr því en það fer nú að komast spenningur í mann.
Faðir minn heimsótti mig svo á frídegi verslunarmanna og stoppaði út vikuna, það var nú gaman að sjá einhvern sem ber sama blóð í æðum og maður sjálfur :)
Bjór og sætabrauð hefur tekið sinn toll af sumrinu og ekki frá því að maður sé að bæta í hringinn en hvað er það svo sem.. maður leggst í ræktina og skyr þegar fasta rútínan byrjar að nýju. Annars hefur lítið verið yfirgefið sveitina þetta sumarið, ja jú fór reyndar á kátan dag á Þórshöfn og að sjálfsögðu á Mærudaga á Húsavík. Stefnan er svo tekinn á að skreppa vestur og suður svona með haustinu. Hugsanlega þegar hestarnir eru sofnaðir í túnunum.
Skammarlega lítið hefur verið hjóla undafarið og verður maður að bæta úr því og taka nokkrar syrpur fyrir vetratímann.

Farin að sakna sperðilgómanna minna á vesturlandinu. Þarf nauðsynlega að fara að sjá kunnurleg andlit þó það sé ekki slæmt í sveitinni :)

Hvað get ég sagt .. ég lýt eins út og ég gerði, á sama bílinn, sama manninn, sama húsið, drekk sama bjórinn, og með sömu áformin um alheimsyfirráð. Ég er ekki ólétt, ekki búinn að breyta nafni mínu í Fusitín, ekki hætt að neyta áfengis, ekki farinn að stunda ungbarnasund og nota ekki radísueyrnalokka.

þá hef ég skilað mínu ... en hvað er að frétta af þér?

~Mæs

» 26 hafa sagt sína skoðun

14.07.2008 19:46:02 / Mæsan

Stutt blogg

Heil og Sæl ..
ÉG LIFI .... Það er ekki mikið í fréttum, maður stundar sína vinnu og drekkur sinn bjór. Kannski full blautur á stundu en hér er líka endalaus gleða, partý og hamingja. Vinnan tekur sinn toll en er bara skemmtileg. Hjólið mitt er bilað, kemst í lag í vikunni ..

en jamm jæj.. endilega kommenta :)

Kv Mæs

» 38 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 17
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  16  Alls: 75434
Dagsetning
10. febrúar 2012